Alþjóðlega hundasýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin helgina 25.-26. ágúst í húsnæði að Klettagörðum 6, 104 Reykjavík.
Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi. Áhorfendum er leyfilegt að koma með sína eigin stóla og sitja við sýningahringi. Alls verða sýndir 719 hreinræktaðir hundar af 83 hundategundum og hefjast dómar kl. 9:00 árdegis báða daga og standa fram eftir degi. Sex dómarar frá fjórum löndum; Belgíu, Finnlandi, Írlandi og Slóveníu dæma í sex sýningarhringjum samtímis. Megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu.
Úrslit báða hefjast um kl. 13:30 og þá kemur í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara.
Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og að þessu sinni taka 25 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda, föstudaginn 24. ágúst kl.19:00.
Dagskrá í úrslitum
Laugardagur
kl. 14:00
Besti hvolpur 4-6 mán. Theo Leenen (Belgía)
Tegundahópur 4/6 Štefan Šinko (Slóvenía)
Ræktunarhópur dagsins Štefan Šinko (Slóvenía)
Afkvæmahópur dagsins Olga Kupryanova (Slóvenía)
Tegundahópur 1 Harry Tast (Finnland)
Besti hvolpur 6-9 mán. Colette Muldoon (Írland)
Tegundahópur 2 Colette Muldoon (Írland)
Tegundahópur 7 Rita Reyniers (Belgía)
Tegundahópur 8 Olga Kupryanova (Slóvenía)
Sunnudagur
kl. 13:30
Besti hvolpur 4-6 mán. Theo Leenen (Belgía)
Afkvæmahópur dagsins Olga Kupryanova (Slóvenía)
Tegundahópur 3 Olga Kupryanova (Slóvenía)
Besti hvolpur 6-9 mán. Colette Muldoon (Írland)
Ræktunarhópur dagsins Štefan Šinko (Slóvenía)
Tegundahópur 5 Harry Tast (Finnland)
Tegundahópur 9 Štefan Šinko (Slóvenía)
Tegundahópur 10 Rita Reyniers (Belgía)
Besti öldungur sýningar Harry Tast (Finnland)
Besti hundur sýningar Rita Reyniers (Belgía)





















