Djúpið, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, var frumsýnd í gærkvöldi á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Torontó í Kanada eins og fram kom á Pressunni í morgun. Þar kom fram að myndin hafi fengið einstaklega góðar viðtökur áhorfenda á svæðinu en um var að ræða heimsfrumsýningu.
Þessi einstaka kvikmynd sem fjallar um ótrúlegt þrekvirki Guðlaugs Friðþórssonar verður frumsýnd hér á landi þann 21. september næstkomandi. Hér að neðan er þó hægt að sjá sýnishorn úr myndinni og óhætt er að segja að hér sé á ferðinni spennandi mynd. Djúpið er að stærstum hluta byggð á sannsögulegum atburðum en slíkt er oft talið gera kvikmyndir töluvert athyglisverðari en ella.




















