Táningsbrúðurin Courtney Stodden sem öðlaðist heimsfrægð þegar hún giftist leikaranum Doug Hutchinson, hún 16 ára og hann 51 árs, varð átján ára á dögunum.
Stodden vakti athygli um leið og hún varð „lögleg“ að hún sagðist hafa fengið ógrynni tilboða um að leika í klámmyndum. Hún sagði í samtali við TMZ að hún væri að hugsa þetta og segði „hvorki nei né já.“
Stodden er fyrrverandi fegurðardrottning og leikkona. Hún gaf út tónlistarmyndband sem hún syngur sjálf og fékk það vægast sagt hræðilegar viðtökur á YouTube. Hún fór ekki í menntaskóla heldur segist vera í góðum kristnum skóla. Hún kennir sig mikið við kristni, talar um Guð og segist vera virkilega góð stúlka.
Hér má sjá myndbandið sem er komið með 5,7 milljón áhorf – aðeins 2691 jákvæð atvæði en um 75.000 neikvæð:
Hutchison er lítið þekktur leikari en best þekktur fyrir hlutverk sitt sem fangavörður í Óskarverðlaunamyndinni The Green Mile. Hann hefur barist við alkóhólisma og er Courtney þriðja konan hans.
Í viðtali við Löru Spencer í Good Morning America segir Cortney að það hafi verið mjög fallegt hvernig þau hittust. „Mamma var að skipuleggja leikframann minn. Vinur mömmu sagði að Hutchison væri með námskeið í leiklist og ég mjög spennt fyrir henni. Svo við kynntumst þannig.“
Hér má sjá viðtalið við brúðhjónin nýgiftu sem tekið var í fyrra:
Lara bendir á í viðtalinu að Courtney líti út fyrir að vera miklu eldri en hún er, en hún er fædd 1994. Sýnir hún fæðingarvottorðið í því samhengi. Einnig gefur hún Hutchinson færi á að verja ummæli margra um að hann sé „pervert.“
Courtney segist ekki hafa farið í lýtaaðgerð og sýndu þau hjónin afar furðulegt myndband þar sem læknar krukka í brjóstunum á henni og komast að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki. Myndbandið hefur nú verið fjarlægt af YouTube.
Hvort um framtíðarsamband er að ræða getur enginn vitað. Courtney Stodden reynir mikið að nýta sér frægðina sem hún hefur öðlast en kannski ekki á sem skynsamlegastan hátt. Eftir umræðuna um klámmyndatilboðin tvítaði hún þessari færslu:
Enginn hjá Playboy kannast þó við að hafa beðið hana um að sitja fyrir hjá tímaritinu og muni það ekki koma til greina, skv. TMZ, þar sem „hún hafi ekki útlitið sem Playboy leiti eftir.“






















