Nýverið lagði Örvar Friðriksson leið sína bílandi frá Reykjavík til Suður-Múlasýslu. Örvar, vopnaður iPad, gerði sér lítið fyrir og myndaði alla ferð sína. Ferðalag Örvars var yfir 500 kílómetrar en á leið sinni stoppaði hann við Seljalandsfoss, Vatnajökul og Jökulsárlón.
Myndbandið er einkar flott, og vel unnið af Örvari sjálfum, en undirspil frá íslensku hljómsveitinni Sigur Rós gefur ferðinni ævintýralegan blæ. Örvar notar svokallað „time-lapse“ við gerð myndbandsins með mjög skemmtilegum árangri.
Myndbandið má sjá hér að neðan:
“Speeding” 500km+ in Iceland (with a few stops) from Orvar Fridriksson on Vimeo.





















