Þær eru stórglæsilegar konurnar sem vinna hjá Nýherjasamstæðunni og komu þær allar saman til þess að fagna kvenréttindadeginum þann 19. júní.
Að sjálfsögðu var mikið fjör í kringum hópinn og skemmti hann sér konunglega, enda veglegar veitingar í boði og flottur fyrirlesari en það var hún Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands, sem ræddi við stelpurnar um árangur í lífi og starfi og skemmti hún stelpunum vel með fyrirlestrinum.
Samkomunni var svo lokið með Pub Quiz keppni en það lið sem bar sigur úr býtum var samansetta af fjórum starfsmönnum frá mismunandi félögum innan Nýherjasamstæðunnar. Þannig var ein þeirra frá Applicon, önnur frá Klak, sú þriðja frá TM Software og sú fjórða frá Nýherja.
Þess má geta að Nýherji hefur tekið í notkun jafnréttisstefnu og leggur ríka áheyrslu á að konur, jafnt sem karlar, veljist í stjórnunarstöður innan Nýherjasamstæðunnar.




























