Flest okkar hafa leyft sér að dreyma um frægu stjörnurnar úti í heimi og mörg okkar höfum við orðið mega skotin í einni eða annarri stjörnu. Ég átti t.d. í leynilegu ástarsambandi við Nick Carter úr Backstreet boys en var fljót að henda plakatinu af honum þegar Leonardo DiCaprio stal hjarta mínu í stórmyndinni Titanic.
Í dag þykist ég vera örlítið þroskaðri en samt á ég alveg mín Hollywood skot og þetta eru þeir eru leikarar sem höfða hvað mest til mín.

Matthew McConaughey, hefur leikið í hverri rómantísku gamanmyndinni á fætur annarri. Það er eitthvað við brosið á manninum

Colin Farrell, vampíran sem ljómaði ekki eins og diskókúla með unglingavandamál. Hann á bad boy lúkkið.

Alveg frá því ég sá Grease í fyrsta sinn sem barn hef ég verið skotin í John Travolta. Það skiptir engu máli hvað maðurinn fitnar eða missir af hári. Fyrir mér er hann alltaf algjör gullmoli.

Vin Diesel. Þegar ég sá hann fyrst fannst mér ekkert varið í hann, svo sá ég xXx og eftir það var ekki aftur snúið

Daniel Craig á James Bond hlutverkið. Það verður erfitt fyrir hvern þann sem hyggst taka við hlutverkinu af honum enda er Daniel ekki bara heitur heldur frábær leikari

Ryan Reynolds er örugglega eini gaurinn sem kemst upp með að klæða sig í grænan þröngan spandex galla eins og í Green Lantern. Andlitsfríður með killer body.
























