Helena Reynis hefur vakið athygli fyrir mikla hæfileika á sviði myndlistar og svo er hún einungis átján ára gömul. Hún heldur sína aðra einkasýningu í Gallerí Tukt í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3-5 og mun hún standa út október. Fyrsta sýningin hennar vakti mikla athygli en hún var á kaffihúsinu Energia. Fjallaði Bleikt um hana og vakti hún gríðarlega athygli.
Síðastliðinn vetur varð hún í öðru sæti í myndlistarmaraþoni Unglistar og í dag er Helena í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ og stefnir á stúdentspróf. Helena segir sjálf um sýninguna í Gallerí Tukt:
Sýningin mín ber heitið Umhverfa / Aroundness og samanstendur af portretteikningum í mikilli stærð ásamt video-verki og fleiru þar sem ég er að skoða einstaklinginn út frá öllum hliðum með því að fara umhverfis hann á margvíslegan hátt.


























