Pepsí-deild kvenna er nú á fullu og aldrei verið meiri stemming en núna. En hvaða lög eru það sem kveikja í stelpunum fyrir leiki og koma þeim í þennan fræga baráttugír?
Við hringdum í svokallaða tónlistarforráðamenn liðanna og heyrðum hvað kemur þeim í rétta gírinn.
ÍBV: Lagið sem stendur upp úr núna í sumar er Ó María en það er auðvitað fleiri sem koma til greina en þetta er samt lagið.
Afturelding: Við erum mjög hrifnar af laginu Big Bootie Bithces en höfundur er ókunnugur en lagið er tryllt.
Selfoss: Það lag sem kemur okkur mest í gírinn af mörgum er Vertu ekki að plata mig með HLH og klefinn verður brjálaður.
KR: Sumar eftir sumar er það auðvitað KR-lagið en annars kemur Lets go með Calvin Harris okkur í hrikalegan gír.
Breiðablik: Ég get sagt þér það strax án þess að hika. Það er með strákunum úr Rottweiler og heitir Þér er ekki boðið.
FH: Það er ekkert eitt sem stendur upp úr en samt er Dont Wake up lag sem ég mun muna eftir sumarið.
Fylkir: Ég tek það fram að “playlistinn” okkar er ekki góður að mínu mati en nýja lagið með Jennifer Lopez er heitt þó ég viti ekki hvað það heitir.
Valur: Það verður allt vitlaust þegar við spilum Paradise City með Guns and Roses.
Stjarnan: Ég er meira fyrir rokk og ról en verð því miður að gefa eftir í klefanum sagði tónlistarforráðamaður Stjörnunnar. Gym class heroes með The Fighter er gríðarlega vinsælt ásamt nýja laginu með Garðbæingunum í Of Monsters of Men.
Þór/KA: Af einhverjum ástæðum þá kunna útlendingarnir okkar textann við verslólagið Mættir á mitt gólfið með Pay Hoe og við viðurkennum það að við tökum vel undir með þeim.



















