Hér er um að ræða sport sem Íslendingar eru ekki vanir að sjá né horfa á. Futeki Kensei er sex manna hópur sem kemur úr Árbænum og flokkast hópurinn undir “Parkour/Free Run”-lið. “Parkour” sportið gengur út á það að komast frá stað A til B á sem stystum tíma með því að nota umhverfið vel. “Free Run” er svo öll þessi viðbótarstökk sem gerir þetta flott.
Óhætt er að segja að hér séu á ferðinni miklir áhættusjúklingar en eins og sjá má í myndbandinu hoppa þeir meðal annars niður óþægilega háa veggi og yfir grjót og malbik. Þetta er ekki fyrir hvern sem er, virklega flott hjá strákunum!



















