Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, er mjög hrifin af hjólinu sínu og reynir að hjóla við flest tækifæri. Í samtali við Grænan apríl sagði Jón að margir héldu að ef maður hjólaði á fundi þá kæmi maður kófsveittur á staðinn en Jón vill meina að það sé misskilningur.
Reykjavíkurborg hefur unnið að því að fjölga hjólreiðarstígum og auka öryggi hjólreiðafólks enda umhverfisvænt og hollt að hjóla.




















