Á föstudaginn síðastliðinn kynnti Donatella Versace nýja vor – og sumarlínu sína á tískuviku sem nú stendur yfir í Mílanó borg. Þar kom fram bæði hin hefðbundna lína Versace í bland við hina óhefðbundnu Versus.
Varsace virðist vera komið á beinu brautina eftir nokkuð erfitt gengi fyrirtækisins undanfarin ár sem að mörgu leyti má rekja til ákveðinna erfiðleika í einkalífi Donatella Versace.
Sýningin á föstudaginn þótti sýna nokkuð óhefðbundin klæðnað en Danatella svaraði því á eftirfarandi hátt:
„Við erum aðallega þekkt fyrir hefðbundna kjóla. Með þessu langaði okkur að sýna hvað í okkur býr.“
Hér að neðan má sjá nokkra af þeim kjólum sem frumsýndir voru á föstudaginn, en óhætt er að segja að um óhefðbundna kjóla sé að ræða.

Myndir/GettyImages




















