Athygli hefur vakið að unglingablaðið Júlía sem sniðið er að unglingsstúlkum birti plakat í miðju blaðsins af söngvaranum Chris Brown sem handtekinn var fyrir að beita söngkonuna Rihönnu grófu ofbeldi.
Í yfirlýsingu sem ritstjórinn Halldóra Anna Hagalín sendi frá sér á miðlunum Smugunni segist hún miður sín yfir þessu klúðri þar sem þau vilji stuðla að því að byggja upp „sterka sjálfsmynd stelpna í blaðinu.”

Plakat af Chris Brown fylgdi með síðasta tölublaði af unglingablaðinu Júlíu. Segist ritstýran ætla að læra af mistökunum og einbeita sér enn frekar að umfjöllun um sterkar kvenímyndir og ofbeldi gegn konum
Í yfirlýsingunni segir m.a:
Birting okkar á plakatinu er andstæð öllum þeim gildum sem við viljum standa fyrir. Við hjá Júlíu tökum vissulega hluta blaðsins og aðlögum frá systurblöðum sem eru gefin út á öllum Norðurlöndum. Þar á meðal þetta plakat af Chris Brown, sem hefur birst þar alls staðar. Brown er heimsþekktur listamaður og á milljónir aðdáenda sem kalla eftir svoleiðis birtingum og fjölmiðlafólk er sennilega ekki nógu duglegt við að standast þær kröfur. Það voru mistök hjá okkur að verða uppvís að þessu sama klúðri hér á landi og fleygja ekki þessi plakat af ofbeldismanninum Chris Brown út í hafsauga. FML.
Einnig segir Halldóra að slík mistök muni ekki koma til með að endurtaka sig þar sem þær þoli ekki Chris Brown „né þá skelfilegu kvenfyrirlitningu sem hann stendur fyrir.”



















