Nú er búið að setja Ólympíuleikana í London og fólk getur farið að glápa á íþróttir í sjónvarpinu daginn inn og daginn út. Sumar íþróttagreinar á Ólympíuleikunum hafa þó óneitanlega verið vinsælli en aðrar í gegnum tíðina og má þar helst nefna strandblak kvenna.

Mynd/Jezebel.com
Mikið hefur verið rætt um það hvort þetta mikla áhorf sem greinin fær sé vegna þess að konurnar eru léttklæddar að leika sér í sandinum eða einfaldlega það að greinin sé þetta spennandi að horfa á. Svarið er mjög líklega þetta fyrra og margir geta verið sammála því.Nú hefur umræðan komið upp aftur og nú veltir Huffington Post því fyrir sér af hverju strandblak karla er ekki gert meira spennandi. Í strandblaki karla eru leikmennirnir oftast í hlýrabolum og stuttbuxum á meðan konurnar eru tæplega í buxum og léttum brjóstahaldara.
Af hverju sýna karlarnir ekki meira eins og konurnar?
Todd Rogers, verðlaunahafi í íþróttinni, segir það einfaldlega ekki eins fallegt. Hann segist hafa æft íþróttina mikið í Brasilíu og þar séu karlarnir oft í sundskýlunni einni þegar þeir æfa íþróttina og það sé einfaldlega ekkert fyrir augað.
April Ross, sem keppir í strandblaki kvenna, segir þetta algjöra vitleysu og bendir á að karlar geta líka verið með mjög flotta líkama. Hún vill að karlarnir rífi sig úr bolnum og spili íþróttina berir að ofan í stuttbuxum. Það sé þá eitthvað fyrir stelpurnar!
Í íþróttinni virðast konurnar þannig vera hlutgerðar en karlarnir ekki. Konurnar þekkja það að verið sé að horfa á þær í strandblaki einungis vegna þess að þær eru léttklæddar. Af hverju mætti það ekki vera öfugt líka?

Myndir/GettyImages




















