Þolir þú illa þegar fólk kvartar, kveinar og nöldrar? Það er góð ástæða fyrir því: Að hlusta á of mikið af kvörtunum er slæmt fyrir heilastarfsemina. Þetta segir Trevor Blake í bók sinni: Three Simple Steps: A Map to Success in Business and Life.
Blake útskýrir í bók sinni hvernig taugasérfræðingar hafa rannsakað heila fólks gagnvart alls konar áreiti: „Heilinn virkar meira eins og vöðvi, meira en áður var haldið. Ef þú ert úti í horni of lengi að hlusta á einhverja neikvæðni mun heilinn bregðast við því.“
Eins og það sé ekki nógu slæmt virðist fólk líka verða sljótt. 30 mínútur eða meira af neikvæðni, t.d. að hlusta á neikvæða útvarpsstöð eða horfa á slíkt í sjónvarpi deyfir taugaenda í hluta heilans sem kallast hippocamus. „Það er sá hluti heilans sem sér um að leysa vandamál.“ Þannig neikvæðni og tuð getur rænt fólk vitinu.
Hvernig er hægt að verjast neikvæðum áhrifum á heilann? Blake segir þrjár leiðir vera til þess:
1. Fjarlægð
Blake talar um óbeinar reykingar í þessu samhengi. Hann þoldi ekki reykingar föður síns og vissi að óbeinar reykingar gætu haft slæm áhrif á heilsuna. Þannig hann fjarlægði sig úr aðstæðunum. Komdu þér frá þeim sem kvartar og kveinar eða er almennt neikvæður.
2. Reyndu að fá „kvartarann“ til að laga vandann
Stundum er ekki hægt að fara úr aðstæðunum. Þannig má biðja þann sem er neikvæður einfaldlega að laga það sem er að. „Reyndu að fá kvartarann til að taka ábyrgð á lausn á vandamálinu. Spurðu hann: „Og hvað ætlar þú að gera í þessu?“ Kvartarinn á það til að labba í burtu á þessum tímapunkti því hann er ekki að fá það sem hann vill.“
3. Búðu til skjöld
Komist þú ekki úr aðstæðunum er gott að búa til „andlegan skjöld“ – t.d. að ímynda sér að þú sért inni í ósýnilegri glerkrukku sem lokar allan hávaða úti. Blake segir að gott sé að búa sér til ímyndaðan friðarstað í hausnum þar sem þú ferð þegar þú ert í kringum þetta leiðindalið. Blake segir: „Ég bjó mér til mynd af eyju sem ég sá í tímariti. Ég fór í „frí“ í hausnum þegar fólk var að rífast og nöldra. Ég brosti og kinkaði kolli, en var í raun í göngutúr á ströndinni minni.“




















