Bogi Jónsson sem gerði garðinn frægan fyrir taílenskan veitingastað og spa sem hann rak á Álftanesi er á góðri leið með að missa aðstöðuna á Álftanesi til bankans. Bogi og eiginkona hans, Nok, hafa keypt gamalt hús í Garði og eru að flytja þangað. Þar ætla þau að byrja á byrjuninni og byggja upp spa. Þau hafa þegar opnað þarabað.
„Ég er fluttur í garð og er að koma mér fyrir en ekki formlega búinn að missa eignirnar á Álftanesi þó að það stefni ekki í neitt annað þannig að þá er þetta næsta vers. Við komumst yfir hús sem var í mikilli niðurníðslu í Garði, fengum það fyrir lítið og ég hef verið að dúlla mér við að hreinsa út úr því og gera það íbúðarhæft,“ segir Bogi.
Á hippanótunum
Bogi og Nok ætla að byggja upp nýtt spa í garði og það á að vera á hippanótunum, nokkurs konar „peace garden“ eða friðargarður. Bogi hefur komið upp þarabaði við skemmu á íbúðarhúsinu og segir að friðargarðurinn verði á hippalegum nótunum og grófari en spaið á Álftanesi. Svo áformar hann að þróa í rólegheitum jurtagufubað með íslenskum jurtum háþrýstivatnsnudd enda er hann sennilega að byrja á byrjunarreit aftur.
Þegar íbúðarhúsið er komið í gott ásigkomulag kemur til greina að bjóða fólki heim eins og þau gerðu fyrstu árin á Álftanesi.
Þarabaðið hefur þegar verið opnað þó að það hafi ekkert verið auglýst enn sem komið er. „Það er á tilraunastigi ennþá en fólki er velkomið að koma. Við erum meira að segja með skilti úti á götu þar sem segir að það kosti 15 evrur. Í sumar var dálítið um það að fólk sem varð að sleppa hótelinu klukkan ellefu fór með flugrútunni upp á völl. Ég sótti það svo þangað , fór með það í þarabaðið og svo tók það flugvélina seinni partinn,“ segir Bogi og bendir á heimasíðuna sína

Bogi Jónsson og eiginkona hans, Nok. „Húðin verður alveg lungamjúk,“ segir Bogi um þarabaðið.
Kom upp fyrir slysni
Þarabaðshugmyndin kom upp fyrir slysni. Bogi var eitt sinn uppi á þaki hjá sér á Álftanesi með heitan pott með heitum sjó. Þegar hann var búinn að tengja hann ákvað hann að koma konunni sinni á óvart og setti fullt af þara í pottinn. Þau fóru svo hjónin í pottinn. Bogi var með hár niður á bak þegar þetta var og daginn eftir kom honum á óvart hvað húðin var silkimjúk og hárið gott. Hann velti fyrir sér hvort þarinn væri þarna að verki og konan hans tók undir það.
„Ég fór að forvitnast um þetta á netinu og sá þá að þetta er algengt á Írlandi og víðar. Engin jurt ofan sjávar hefur jafnmikið joð og harinn, hann er líka með til dæmis D-vítamín og B12 sem er gott fyrir okkur í sólarleysinu. Og auðvitað er kjörið að taka þetta inn í gegnum stærsta líffæri líkamans sem er húðin,“ segir Bogi og bætir við að þaraboðið sé einstaklega gott fyrir þá sem hafa exem og þurra húð. „Húðin verður alveg lungamjúk.“
Engin tímamörk eru á baðinu hjá Boga. Potturinn er átta manna og fólk má vera eins lengi og það vill og getur.




















