
Mynd/DCkids
Hin tíu mánaða gamla Valentina Guerrero situr fyrir í nýrri auglýsingaherferð Dolores Cortés sem í þetta skiptið sérhæfir sig í sundfötum fyrir börn. Valentina fæddist með Down‘s-heilkenni en þetta kemur fram í umfjöllun á Daily Mail.
Sú litla kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir framan fólk á Miami Swim Fashion Week sem fram fór um miðjan júlí síðastliðinn. Þar kom hún fram þegar hönnuðir komu með hana í fanginu, í enda sýningarinnar, þar sem hún var klædd í nýjustu línuna af sundfötunum. Óhætt er að segja að sú litla hafi slegið allrækilega í gegn.
Valentina mun einnig sjá um næstu herferð fyrirtækisins en hún mun fara fram á næsta ári. Hún er fyrsti einstaklingurinn í heiminum með Down‘s-heilkenni sem valin er til að vera aðalnúmerið í slíkri tískuherferð.
Hönnuðurinn sjálfur, Dolores Cortés, er virkilega ánægð með útkomuna:
„Fólk með Down‘s-heilkenni er alveg eins fallegt og aðrir og á skilið alveg sömu möguleika og annað fólk. Ég er ótrúlega ánægð með að Valentina sé partur af okkar starfsemi.“
Móðir Guerrero er einnig himinlifandi með dóttur sína og segir hún að með þessu kenni dóttir sín okkur hinum miklu meira en við eigum nokkurn tímann eftir að kenna henni.
Af myndunum að dæma virðist Valentina Guerrero elska módellífið þar sem hún skartar hinum ýmsu litríku sundfötum, skælbrosandi og alsæl!

Mynd/DCkids

Mynd/DCkids

Mynd/GettyImages




















